fimmtudagur, 13. mars 2008

gott lúkk, medium blogg !


búinn að kveikja í einum cowboy, lapparinn oná carlsbergkassa inná lager oooooog........it's on !

ég var að lesa fréttablaðið í dag sem er svosum ekkert óvenjulegt, ég er jú læs ( sörpræs ). þar sem ég sat í makindum mínum í matsalnum (með Bigga Te á móti mér og Kalla kokk fyrir attann mig að glugga í sama blað og ég sem hann jú gerir svo oft þangað til hann sér eitthvað merkilegt og rífur af mér blaðið), rak mig í algjöran og snarbrattann rogastanz..... kings of leon á hróarskeldu ! ég fékk áfall á áfall ofan og hugsaði sjálfum mér þegjandi þörfina fyrir að hafa gert bindandi samning við Evil Kate um að næst þegar við förum til úgglanda, förum við saman( sem er ekki lenska okkar hjúa). ég neflilega fór eitt sinn til danaveldis til að sjá Kings of leon og þá var tónleikunum aflýst daginn fyrir herlegheitin og ég brjálaður með nákvæmlega enga dönskukunnáttu í blóti og ragni, en ferðin var góð enda kona og barn með í för........ svo í gær fékk ég símtalið sem allir hafa beðið eftir, Gunni Tryggva hljómsveitastjóri The Cantabile hringdi og spurði hvort það væri ekki komin tími á ball fyrir eldra fólkið, ég hélt það nú!!!!!!!!!!!!!!!!!!

þetta er svona miðlungsblogg, sem er ástæðan fyrir því að ég blogga sjaldan, thank you good night!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kvitti, kvitt

Nafnlaus sagði...

skooooo ég vil fara að fá nýja færslu... með miklum hugmyndum takk fyrir... :)

Nafnlaus sagði...

jæja, ertu bara hættur að blogga eða....??

Nafnlaus sagði...

jæja.. hvað á þetta að þýða?? það þýðir ekkert að láta lýða svona langt á milli bloga .. það má nú alveg fara koma nýtt annars verð ég bara reið.. ekki viljum við það
kv H.B.

Nafnlaus sagði...

nýtt blogg varst eignlega búinn að lofa því ...

Nafnlaus sagði...

ég er eiginlega kominn með ógeð af þessari færslu er búinn að lesa hana alltof oft!!!! nenniru að fara setja nýja..